Ljóð og myndir (LHI-AS-13-IS)
Þátttakendur velja sér ljóð til umfjöllunar. Þátttakandi og leiðbeinandi ræða innihald ljóðsins og merkingu þess. Eftir umræður myndlýsa þátttakendur ljóði eða ljóðum með aðstoð leiðbeinanda. Þátttakendum gefst kostur á að nýta mismunandi aðferðir við myndsköpun.
LessÞátttakendur velja sér ljóð til umfjöllunar. Þátttakandi og leiðbeinandi ræða innihald ljóðsins og merkingu þess. Eftir umræður myndlýsa þátttakendur ljóði eða ljóðum með aðstoð leiðbeinanda. Þátttakendum gefst kostur á að nýta mismunandi aðferðir við myndsköpun.
Þátttakendur velja sér ljóð til umfjöllunar. Þátttakandi og leiðbeinandi ræða innihald ljóðsins og merkingu þess. Eftir umræður myndlýsa þátttakendur ljóði eða ljóðum með aðstoð leiðbeinanda. Þátttakendum gefst kostur á að nýta mismunandi aðferðir við myndsköpun.
- Áhersla á
- Vilji til að skoða nýja möguleika með opnum huga
- Sjálfsvitund
- Trú á eigin getu
- Hæfni til að tjá sig
- Þjálfunaraðferð
- Með leiðbeinanda
- Hópastærð
- <10 þátttakendur
- Tími
- Meira en 60 mínútur
- Námsaðstaða
- Augliti til auglitis
- Efla leikni og þekkingu
- Þróun sköpunarkrafts
- Efling frumkvöðlafærni og nýsköpunar
- Hæfni/færni
- Hæfileiki til að læra og tileinka sér nýja þekkingu
- Samskipti
- Sjálfshvatning og seigla

Heiti
Ljóð og myndir
Kennsluaðferð
Námskeið þar þátttakendur fjalla um sérvalin ljóð. Þátttakendur myndlýsa síðan ljóðunum með aðstoð leiðbeinanda. Námskeiðið getur verið hvort sem er í gegnum fjarfundabúnað eða í kennslustofu.
Kennslugögn
Tölva, pappír, vatnslitir, trélitir, blýantar, olíulitir o.s.frv.
Undirbúningur:
Þátttakandi tekur til það sem hann vill nota til að búa til myndir
Undirbúningstími
Einstaklingsbundinn
Ábendingar til undirbúnings
Mikilvægt er að þátttakendur geri ekki of miklar kröfur til sjálfrar sín.
Tilvísanir og bakgrunnur
Hugmyndin og útfærsla þessa námskeiðs kemur frá listamanninum sem hefur mikla reynslu af kennslu myndlistar og myndlýsingum bóka.
Hæfniviðmið
Í lok þessarar æfingar eiga einstaklingar að hafa fengið þjálfun í að:
- lesa ljóð og tjá sig um innihald þeirra frá ólíku sjónarhorni,
- myndlýsa ljóði,
- skoða eigin huga og prófa nýjar hugmyndir,
- ræða um eigin framlag í hópi annarra.
Nánari lýsing í skrefum
- Leiðbeinandi kynnir verkefnið fyrir þátttakendum og hvetur þá til að skoða ljóðabækur og velja sér ljóð sem þeir vilja vinna áfram með.
- Þátttakendur hittast hvort sem er í kennslustofu eða í gegnum fjarfundabúnað og ræða ljóðavalið.
- Hver þátttakandi segir frá hvernig hann myndi myndlýsa texta ljóðsins sem hann hefur valið.
- Þátttakendur hefja myndlýsinguna.
- Tveir og tveir skoða myndlýsingu hvors annars og ræða.
- Umræður allra þátttakenda á námskeiðinu um hvernig til hefur tekist.
Listamaður
Marta María Jónsdóttir
Vefsíða
martamaria.is
Tenglar
marta.jonsdottir at gmail.com
Upplýsingar um listamanninn og framlag hans
Marta María Jónsdóttir býr og starfar í Reykjavík. Hún hefur lokið framhaldsnámi í hreyfimyndagerð frá London Animation Studio, Dentral Saint Martins College of Ard and Design, í London, MA gráðu í myndlist frá Goldsmiths College. Univerisity of London og lokaprófi í málun frá Myndlista- og Handíðaskóla Íslands þar sem hún fékk viðurkenningu fyrir frábæran árangur. Hún hefur einnig lokið framhaldsnámi í ritlist frá Háskóla Íslands.
Marta Maria býður þeim sem áhuga hafa að hafa samband við hana marta.jonsdottir@gmail.com til að ræða námskeiðin sem í boði eru eða annað samstarf.
Listgrein
Bókmenntir og myndlist
Tungumál
Enska, Íslenska
Calendar
Announcements
- - There are no announcements -